1592
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |


Árið 1592 (MDXCII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Morðbréfamálið: Fyrsti morðbréfabæklingurinn gefinn út. Á Alþingi um sumarið reyndi Guðbrandur biskup að fá lögréttu til að dæma bréfin fölsuð, en sökum andstöðu Jóns Jónssonar lögmanns gekk það ekki.
- Kýraugastaðasamþykkt gerð á prestastefnu Odds Einarssonar Skálholtsbiskups.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- Árni Oddsson, lögmaður (d. 1665)
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 30. janúar - Klemens VIII (Ippolito Brandini) varð páfi.
- 3. mars - Trinity College, elsti háskóli Írlands, var stofnaður.
- 13. apríl - Japan hóf innrás í Kóreu.
- 20. apríl - Hinrik 4. Frakkakonungur endaði 25 mánaða umsátur um Rúðuborg sem var á valdi Spánverja.
- 20. maí - Bretar og Spánverjar lentu í átökum við Asoreyjar sem stóðu fram í ágústmánuð þegar Englendingar unnu sigur á flota Spánverja.
- 4. nóvember - Búrma réðst á Konungsríkið Ayutthaya (Taílandi).
- 17. nóvember - Sigmundur 3. Póllandskonungur varð konungur Svíþjóðar við lát Jóhanns 3., föður síns.
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Herogadæmið Palatine Zweibrücken í Heilaga rómverska keisaradæminu varð fyrsta svæðið í heimi sem kvað á um skyldunám fyrir drengi og stúlkur.
- Austurlandafélagið, enskt verslunarfélag, var stofnað.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 5. janúar - Shah Jahan, keisari Mógúlveldisins (d. 1666).
- 22. janúar - Pierre Gassendi, franskur heimspekingur, stærðfræðingur og vísindamaður (d. 1655).
- 20. febrúar - Nicholas Ferrar, enskur athafnamaður og trúarleiðtogi (d. 1637).
- 28. mars - Comenius, tékkneskur kennari og rithöfundur (d. 1670).
- 28. ágúst - George Villiers, hertogi af Buckingham (d. 1628) .
- Mústafa 1. Tyrkjasoldán (d. 1639).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 13. september - Michel de Montaigne, franskur heimspekingur (d. 1533).
- 17. nóvember - Jóhann 3. Svíakonungur (f. 1537).
- 3. desember - Alexander Farnese, hertogi af Parma (f. 1545).
- Poul Huitfeldt, danskur aðalsmaður, höfuðsmaður á Íslandi og síðar ríkisstjóri í Noregi (f. um 1520).
