1563
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1563 (MDLXIII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Friðrik 2. Danakonungur keypti brennisteinsnámur Ásverja í Mývatnssveit.
- Kirkjan í Haffjarðarey á Mýrum lögð niður eftir að presturinn og margt sóknarfólk drukknaði á leið í land.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Daði Guðmundsson í Snóksdal.
- Guðrún Björnsdóttir eldri, húsfreyja á Núpi, ekkja Hannesar Eggertssonar hirðstjóra (f. 1489).
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 18. febrúar - Frans hertogi af Guise, foringi kaþólikka í Frakklandi, var særður af Húgenottanum Jean de Poltrot de Méré þegar hann sat um Orléans og dó sex dögum síðar.
- 19. mars - Karl 9. Frakkakonungur varð lögráða og tók við völdum að nafninu til þótt móðir hans, Katrín af Medici, héldi áfram um stjórnartaumana.
- 23. apríl - Hafið var að byggja konungshöllina El Escorial á Spáni, norðaustur af Madríd.
- 30. maí - Danskur floti skaut að Svíum á Borgundarhólmi. Svíar höfðu betur í orrustu sem varð í kjölfarið og tóku m.a. Otte Stigsen Hvide til fanga.
- 4. júní - Skoska þingið bannaði galdramál og gerði það stunda galdra og að ráðfæra sig við nornir refsivert með aftöku á báli.
- 28. júlí - Englendingar í Le Havre gáfust upp fyrir Frökkum eftir umsátur.
- 23. ágúst - Norræna sjö ára stríðið milli Dana og Svía hófst þegar Dansk-norska ríkið og verslunarborgin Lübeck lýstu stríði á hendur Svíþjóð.
- 9. nóvember - Svíar biðu mikinn ósigur fyrir Dönum við Oskarström í Svíþjóð.
- 4. desember - Kirkjuþinginu í Trento lauk formlega.
- Brimaborg var rekin úr Hansasambandinu vegna trúarbragðaerja.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 4. september - Wanli, keisari Mingveldisins í Kína (d. 1620).
- Robert Naunton, enskur stjórnmálamaður (d. 1635).
- John Dowland, enskt tónskáld, söngvari og lútuleikari (d. 1626).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 24. febrúar - Frans hertogi af Guise, foringi kaþólikka í Frakklandi (f. 1519).
