Saarland
Saarland | |
|---|---|
Staðsetning í Þýskalandi | |
| Hnit: 49°23′N 6°53′A / 49.383°N 6.883°A | |
| Land | |
| Höfuðstaður | Saarbrücken |
| Flatarmál | |
| • Samtals | 2.571,52 km2 |
| Mannfjöldi (2022)[1] | |
| • Samtals | 992.666 |
| • Þéttleiki | 390/km2 |
| Tímabelti | UTC+01:00 (CET) |
| • Sumartími | UTC+02:00 (CEST) |
| Vefsíða | www |
Saarland er minnsta sambandsland Þýskalands utan borgríkjanna Berlín, Hamborg og Bremen, aðeins 2.572 km2 að flatarmáli. Íbúarnir eru aðeins tæp ein milljón (2022), sem gerir Saarland að næstfámennasta sambandslandi Þýskalands.[1] Aðeins Bremen er fámennari. Saarland hefur lengi verið bitbein milli Þýskalands og Frakklands, rétt eins og Elsass (Alsace) og Lothringen (Lorraine).
Lega
[breyta | breyta frumkóða]Saarland liggur suðvestarlega í Þýskalandi og á löng landamæri að Frakklandi í vestri. Vestasti oddinn tengist einnig Lúxemborg. Að öðru leyti er Saarland umlukið af sambandslandinu Rínarlandi-Pfalz.
Fáni og skjaldarmerki
[breyta | breyta frumkóða]Fáni Saarlands er eins og þýski fáninn, nema hvað skjaldarmerki sambandslandsins er í miðjunni. Fáni þessi var tekinn upp 1957, þegar Saarland var stofnað sem sambandsland, gagngert til að sýna fram á að landið væri þýskt. Skjaldarmerki Saarlands er fjórskipt. Efst til vinstri er hvítt ljón á bláum grunni, en það var merki greifanna frá Saarbrücken. Efst til hægri er rauður kross á hvítum grunni, sem var merki kjörbiskupanna frá Trier. Neðst til vinstri eru þrír hvítir ernir í rauðum borða á gulum grunni, en það var merki hertogadæmisins Lothringen (Lorraine), sem í dag er franskt. Neðst til hægri er gyllt ljón á svörtum grunni, sem var merki hertogadæmisins Pfalz-Zweibrücken. Skjaldarmerki þetta var tekið upp 1. janúar 1957, daginn sem Saarland varð að sambandslandi.
Orðsifjar
[breyta | breyta frumkóða]Saarland er nefnt eftir ánni Saar sem rennur í gegnum landið og er þverá Mósel. Áin hét Saravus á 3. öld og er heitið dregið af indógermanska orðinu ser, sem merkir að fljóta. Áin Saar á upptök sín í Frakklandi og heitir Sarre á frönsku.[2]
Söguágrip
[breyta | breyta frumkóða]
- 925 varð landið hluti af hinu heilaga rómverska ríki. Mörg greifadæmi myndast. Þeirra helst er greifadæmið Saarbrücken.
- Næstu aldir tilheyrði landið ýmsum greifadæmum, s.s. hertogadæminu Lothringen, kjörfurstadæminu Trier og hertogadæmunum Pfalz-Zweibrücken og Nassau-Saarbrücken.
- 1680 réðst Loðvík XIV. inn í þýska ríkið í 9 ára stríðinu. Landsvæðið var allt innlimað í Frakkland (Reunion) og myndaði í fyrsta sinn eina heild, Saarsvæðið.
- 1697 varð Frakkland að skila Saarsvæðinu aftur í friðarsamningunum í Rijswijk.
- 1793 innlimuðu Frakkar Saarsvæðið aftur í byltingarútrásinni.
- 1814 úrskurðaði Vínarfundurinn að Frakkar skyldu skila Saarsvæðinu og skyldi því skipt milli Prússlands og Bæjaralands og nokkurra smærri furstadæma.
- Síðla á 19. öld hófst kola- og stáliðnaðurinn í héraðinu.
- 1871 sigraði Bismarck Frakka í orrustunni við Spichern, nálægt Saarbrücken, og innlimaði Elsass og Lothringen. Prússland varð keisaradæmi og Saarsvæðið hluti af því.
- 1918 beið Þýskaland ósigur í heimstyrjöldinni fyrri. Frakkar hernámu Saarhéraðið.
- 1920 úrskurðaði þjóðabandalagið að Saarhéraðið skyldi vera undir stjórn Frakklands í 15 ár.
- 1935 fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla í Saarhéraðinu og kusu rúmlega 90% íbúanna sameiningu við Þýskaland. Það varð formlega sérstakt hérað og fékk í fyrsta sinn heitið Saarland.
- 1945 biðu Þjóðverjar ósigur í heimstyrjöldinni síðari. Frakkar áformuðu að innlima Saarland endanlega, en Þjóðabandalagið meinaði þeim það.
- 1946 var Saarland klofið frá franska hernámssvæðinu og breytt í franskt verndarsvæði með eigin stjórn, stjórnarskrá og mynt (Saarmark og síðar Saarfranka 1947).
- 1955 fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla í Saarland og kusu 67% íbúanna sameiningu við Þýskaland.
- 1957 varð Saarland að yngsta sambandslandi Þýskalands (utan Austur-Þýskalands).
Borgir
[breyta | breyta frumkóða]Stærstu borgir Saarlands eftir íbúafjölda:
| Röð | Borg | Íbúar | Ath. |
|---|---|---|---|
| 1 | Saarbrücken | 176 þúsund | Höfuðborg sambandslandsins |
| 2 | Neunkirchen | 48 þúsund | |
| 3 | Homburg | 43 þúsund |
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- 1 2 „Fläche und Bevölkerung nach Ländern“. Statistikportal. Statistische Ämter des Bundes und der Länder. Sótt 27 apríl 2026.
- ↑ Geographische Namen in Deutschland. Duden. 1993. Bls. 230.
