Carcass
Útlit

Carcass er ensk dauðarokkshljómsveit sem stofnuð var árið 1985 í Liverpool. Sveitin er frumkvöðull í bæði mulningskjarna og melódísku dauðarokki en platan Heartwork (1993) þykir vera lykilverk í síðarnefndu stefnunni. [1] Carcass hætti árið 1996 en kom aftur saman árið 2007.
Sveitin hefur gengið í gegnum breytingar á liðskipan en gítarleikarinn Bill Steer og bassaleikarinn/söngvarinn Jeff Walker hafa verið stöðugir meðlimir.
Eitt og annað
[breyta | breyta frumkóða]- Carcass endurhljóðblandaði lagið Isobel með Björk. Lagið kom út á smáskífunni Hyperballad (1996).
- Í einum gamanþætti seríunnar Friends er stungið upp á að Carcass spili í brúðkaupi. [2]
- Mikael Amott, gítarleikari sveitarinnar stofnaði síðar hljómsveitina Arch Enemy.
- Carcass spilaði á þungarokkshátíðinni Sátunni í Stykkishólmi árið 2025.
Meðlimir
[breyta | breyta frumkóða]- Bill Steer – gítar, söngur (1985–1996, 2007–)
- Jeff Walker – bassi, söngur (1985–1996, 2007–)
- Daniel Wilding – trommur, bakraddir (2012–)
- James 'Nip' Blackford – gítar (2021–)
Fyrrum meðlimir
[breyta | breyta frumkóða]- Ken Owen – trommur, söngur (1985–1996, gestur 2008, 2009, 2010, 2013)
- Sanjiv Sumner – söngur (1986–1987)
- Michael Amott – gítar, bakraddir (1990–1993, 2007–2012)
- Carlo Regadas – gítar (1994–1996)
Plötur
[breyta | breyta frumkóða]- Reek of Putrefaction (1988)
- Symphonies of Sickness (1989)
- Necroticism – Descanting the Insalubrious (1991)
- Heartwork (1993)
- Swansong (1996)
- Surgical Steel (2013)
- Torn Arteries (2021)
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Carcass Allmusic.com
- ↑ Remember when Carcass was on Friends? Metalinsider.net
