close
Fara í innihald

Ted Turner

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ted Turner
BERJAYA
Ted Turner árið 1985.
Fæddur
Robert Edward Turner III

19. nóvember 1938(1938-11-19)
Dáinn6. maí 2026 (87 ára)
Lamont, Flórída, Bandaríkjunum
ÞjóðerniBandarískur
MenntunBrown-háskóli (útskrifaðist ekki)
StörfAthafnamaður, fjölmiðlamaður
MakiJulia Gale Nye (g. 1960; sk. 1964)
Jane Shirley Smith (g. 1965; sk. 1988)
Jane Fonda (g. 1991; sk. 2001)
Börn5
Vefsíðatedturner.com
Undirskrift
BERJAYA

Robert Edward „Ted“ Turner III (19. nóvember 1938 – 6. maí 2026) var bandarískur athafnamaður, sjónvarpsframleiðandi, fjölmiðlamaður og mannúðarvinur. Hann stofnaði CNN, fyrstu fréttastöðina í kapalsjónvarpi sem sendi út fréttir allan sólarhringinn. Turner stofnaði einnig WTBS, sem er gjarnan talin fyrsta „risastöðin“ í kapalsjónvarpi, og fjölmiðlafyrirtækið TNT.

Ted Turner fæddist í Cincinnati í Ohio árið 1938.[1] Hann leit alla tíð á sig sem suðurríkjamann og seinna áskotnaðist honum viðurnefnið „suðurríkjakjafturinn“ (e. The Mouth of the South). Fjölskyldan flutti til Tennessee þegar hann var ungur að árum og síðan til Georgíu.[2] Afi hans, Robert Edward Turner I, hafði átt bómullarekrur en hafði tapað aleign sinni í kreppunni miklu. Faðir Turners, Robert Edward Turner II, rak auglýsingastofu og Ted hóf feril sinn hjá honum.[3]

Turner gekk í Brown-háskóla á Rhode Island og nam þar fornfræði en skipti síðar yfir í viðskiptafræði. Hann var vinsæll nemandi og virkur í félagslífi, meðal annars sem fyrirliði skólaliðsins í ræðukeppnum og í siglingakeppnum. Turner útskrifaðist aldrei úr háskólanáminu þar sem hann var að endingu rekinn fyrir brot á reglum skólans, síðast þegar hann var gripinn í bólinu með skólasystur sinni.[2]

Eftir að Turner var rekinn úr Brown-háskóla hóf hann störf hjá fyrirtæki föður síns. Þegar Turner var aðeins 24 ára gamall varð hann eigandi og forstjóri fjölskyldufyrirtækisins eftir að faðir hans fyrirfór sér. Á þessum tíma var fyrirtækið rekið með miklum hagnaði og var nær einrátt í uppsetningu auglýsinga í Georgíu og nágrannafylkjunum.[2]

Turner fór smám saman að færa út kvíarnar þegar hann tók við stjórn fyrirtækisins. Hann hóf að kaupa staðarsjónvarpsstöðvar, þá fyrstu árið 1969, og öðlaðist reynslu í rekstri kapalsjónvarpsstöðva. Turner beitti þá nýstárlegum leiðum til að græða á rekstri sjónvarpsstöðva, til dæmis að með því að kaupa ódýran sýningarrétt á gömlum kvikmyndum og teiknimyndum. Sjónvarpsstöðvar Turners græddu einnig vel á útsendingum íþróttaleikja og Turner keypti í sum skipti heil íþróttalið til að komast yfir tiltölulega ódýrt sjónvarpsefni. Árið 1973 fékk Turner leyfi til þess að sjónvarpa efni milli stöðva gegnum gervihnetti.[2]

Árið 1980 stofnaði Turner sjónvarpsstöðina Cable News Network, eða CNN, sem sendi út fréttir allan sólarhringinn. Vinsældir stöðvarinnar voru ekki miklar í fyrstu en fréttaflutningur stöðvarinnar um nokkra stóratburði á næstu árum urðu til þess að auka áhrif hennar. Persaflóastríðið árið 1991 skipti þar mestu máli. Lifandi fréttaflutningur CNN af þeim átökum allan sólarhringinn gerði stöðina að einum helsta brautryðjandanum í sjónvarpsútsendingum eftir tilkomu gervihnattarsjónvarps.[4]

Turner var á hátindi frægðar sinnar eftir Persaflóastríðið. Tímaritið Time valdi Turner sem mann ársins 1991 vegna þeirra áhrifa sem hann hafði haft á fjölmiðla í Bandaríkjunum og víðar.[5] Á næstu árum fór hins vegar að halla undan fæti hjá Turner af ýmsum ástæðum. Árið 1996 gekk Turner til samstarfs við Time Warner-samsteypuna en missti eftir það smám saman stjórn á fyrirtæki sínu. Hann tapaði jafnframt miklu fé í verðbréfahruni á Wall Street árið 2001. Árið 2003 seldi Turner hlut sinn í CNN.[2] Talið er að Turner hafi tapað um sjö milljörðum dala á aðeins þremur árum eftir aldamótin.[5]

Turner var þekktur fyrir stuðning við ýmis mannúðarmál. Hann gaf meðal annars Sameinuðu þjóðunum um milljarð Bandaríkjadala á nokkurra ára tímabili og barðist fyrir útrýmingu kjarnorkuvopna og fyrir ýmsum málefnum á sviði náttúruverndar.[5]

Turner var þríkvæntur. Hann var kvæntur leikkonunni Jane Fonda frá 1991 til 2001. Þau voru áfram nánir vinir eftir að þau skildu.[5] Þegar Turner lést lét hann eftir sig fimm uppkomin börn, 14 barnabörn og tvö barnabarnabörn.[1]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1 2 „Ted Turner látinn“. mbl.is. 6. maí 2026. Sótt 6. maí 2026.
  2. 1 2 3 4 5 Gísli Kristjánsson (1. mars 2013). „Vandræðabarn í viðskiptum“. Frjáls verslun. bls. 10–12.
  3. „Blanda af viskíi, kynlífi og trúrækni“. Dagblaðið Vísir. 30. janúar 1991. bls. 11.
  4. „Sigurvegarinn í fjölmiðlastríðinu“. Morgunblaðið. 27. janúar 1991. bls. 15.
  5. 1 2 3 4 Samúel Karl Ólason (6. maí 2026). „Ted Turner er látinn“. Vísir. Sótt 6. maí 2026.
BERJAYA  Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.