Anna Karenina
Titilsíða fyrstu útgáfu bókarinnar frá 1878. | |
| Höfundur | Lev Tolstoj |
|---|---|
| Upprunalegur titill | Анна Каренина |
| Þýðendur | Magnús Ásgeirsson (1.-2. bók) Karl Ísfeld (3.-4. bók) |
| Land | |
| Tungumál | Rússneska |
| Stefnur | Raunsæi, harmleikur[1][2][3][4] |
| Útgefandi | Rússkíj Vestník |
Útgáfudagur | 1878 |
| Síður | 864 |
Anna Karenina (rússneska: Анна Каренина)[5] er skáldsaga eftir rússneska rithöfundinn Lev Tolstoj sem var gefin út sem bók árið 1878. Tolstoj kallaði bókina fyrstu sönnu skáldsögu sína.[6] Bókin var upphaflega birt í hlutum frá 1875 til 1877 og voru allir nema sá síðasti birtir í tímaritinu Rússkíj Vestník.[7] Þegar Tolstoj lauk síðustu hlutunum var hann farinn að hata söguna og honum var þvert um geð að ljúka við hana.[8]
Skáldsagan fjallar um svikráð, trú, fjölskyldu, hjónabönd, samfélag rússneska keisaradæmisins, ástarþrá og muninn á landsbyggðar- og borgarlífi. Sagan snýst um framhjáhald titilpersónunnar Önnu Karenínu með riddaraliðsforingjanum Aleksej Kíríllovítsj Vronskíj greifa. Samband þeirra veldur hneyksli í Sankti Pétursborg og neyðir ungu elskendurna til að flýja til Ítalíu í leit að hamingju en eftir að þau snúa heim til Rússlands umturnast líf þeirra enn frekar.
Járnbrautir eru sagnaminni sem birtist ítrekað í skáldsögunni. Ýmis mikilvæg atriði gerast um borð í farþegalestum eða á lestarstöðvum í Sankti Pétursborg eða annars staðar í Rússlandi. Frjálslyndisumbætur Alexanders 2. Rússakeisara og skyndilegar samfélagsbreytingar sem fylgdu þeim gerast í bakgrunni sögunnar. Skáldsagan hefur meðal annars verið gerð að leikriti, óperu, kvikmyndum, sjónvarpsþáttum, ballett, listhlaupi og útvarpsleikriti.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Raymond Williams (1963). „Tolstoy, Lawrence, and Tragedy“. The Kenyon Review. 25 (4): 633–650. JSTOR 4334372.
- ↑ Khosla, Aishwarya (16 júlí 2025). „Anna Karenina, Tolstoy's timeless tragedy, revisited in 10 frames“. The Indian Express. Sótt 17 nóvember 2025.
- ↑ „A Tragedy without a Killer Is a Real Tragedy — Analysis of Anna Karenina's Tragedy“. Art Studies and Criticism. Frontier Scientific Publishing. Sótt 17 nóvember 2025.
- ↑ „Anna Karenina novel by Tolstoy“. Encyclopædia Britannica. 6 nóvember 2025. Sótt 17 nóvember 2025.
- ↑ Nabokov, Vladimir (1980). Lectures on Russian Literature. New York: Harvest. bls. 137 (note). ISBN 0-15-649591-0.
- ↑ Christian, R. F. (2015). Tolstoy’s Letters, Volume 1: 1828–1879. London: Faber & Faber. bls. 261. ISBN 9780571324071. Sótt 8. desember 2024. „This novel–I mean a novel, the first in my life–...“
- ↑ Todd, William M. III (2003). "Anna on the Installment Plan: Teaching Anna Karenina through the History of Its Serial Publication," Approaches to Teaching Tolstoy's "Anna Karenina", ed. Liza Knapp and Amy Mandeleker, New York: Modern Language Assoc. of America, bls. 55.
- ↑ MacFarquhar, Larissa (2015). Strangers Drowning: Impossible Idealism, Drastic Choices, and the Urge to Help. Penguin Books. bls. 277. ISBN 9780143109785.
